ljóðið fyrir afa

24. apríl 2009 klukkan 15:15
The Darkness of the Night

I'm stuck inside my head
screamin out for help
silently until I go mad.
I try to cope and believe in hope
without you by my side.

I don't know how to fight
this feeling late at night
when I think about your sight
Then there's this undescribeable high
and later the low.

I don't know what to do now.
I don't have more space so I won't write more.
But my thoughts need no space.
They're in my head and I can't escape.
I'm afraid I'll never escape.

La Oscuridad de La Noche

Estoy fija dentro de mi cabeza,
pidiendo socorros a gritos
silenciosamente hasta que me enloquezca.
Intento arreglarme y creer en la esperanza
sin necesidad de que estés a mi lado.

No sé como luchar,
este sentimiento en la oscuridad de la noche
cuando pienso sobre tu mirada.
Entonces hay ese increíble vértigo
que luego se combierte en una profunda depresión .

No sé que puedo hacer ahora.
No tengo más espacio así que no escribiré más.
Pero mis pensamientos no lo necesitan;
están en mi cabeza y no puedo escapar de ellos.
Creo que nunca escaparé.

 

 
Sigríður St Hlynsdóttir

páskarnir + ammæli

24. apríl 2009 klukkan 15:09
Ætla að byrja á páskafríinu sem er búið að vera ekta FRÍ....ekki búin að gera neitt nema hanga alla vikuna....hitti reyndar Miriam og Rin til að klára eina kynningu fyrir skólann en það voru bara 2-3 klst og svo allt búið ;)....ég og manu erum búnar að vera með miðnætursýningar á bíómyndum allavikunna og held við séum búnar að horfa á allar myndir sem við eigum til samtals....
Á miðvikudaginn skellti ég mér svo til Tarragona með Manu að kaupa kjól fyrir fermingarveislu hjá frænku Miriam og við vorum svo sniðugar að fatta þegar við lögðum af stað að við höfðum tekið lestina en ekki strætóinn og við vissum ekkert hvernig átti að komast frá lestarstöðinni að verslunarmiðstöðinni, en komumst samt sem betur fer þangað að lokum ;)....
Á fimmtudaginn var svo gott veður að ég og Manu ákváðum að skella okkur bara á ströndina...sem var bara nokkuð gaman...fórum fyrst í smá sparka á milli fótbolta þar sem ég sannaði fótboltasnillina mína...fórum svo í smá blak með boltan en gáfumst fljótt upp á því og keyptum okkur blakbolta....svo var eikver vinkona manu þarna á ströndinni sem fór í blak með okkur og svo bættist við eikver gaur sem var þarna líka...en svo þurfti vinkona manu að fara og við vorum eikvað orðin þreytt á að sanna snilli okkar í blaki svo við ákváðum bara að fara í smá fótbolta og þá bættist við vinur gaursins líka og vorum svo bara eikvað að hanga með þeim þar til við fórum heim....svo þetta var bara nokkuð góður dagur....
Föstudagurinn fór svo bara í eikvað hangs og svona...um kvöldið fórum við svo með vinkonu manu úr fótboltanum að fylgjast með eikverri skrúðgöngu..spánverjar klæða sig semsagt upp sem rómverskir riddarar og kluxkluxklan og fara í skrúðgöngu á föstudaginn langa...vorum samt svo heppnar þetta kvöld...um leið og við stigum út heyrðum við í þrumum en hélst samt þurrt alveg þangað til við vorum lagðar af stað heim aftur þegar kom hellirigning svo okkur tókst að hlaupa í skjól áður en við urðum rennandi blautar....
Á laugardaginn fór ég svo í klippingu með miriam og mateos þar sem ég gat bara ekki þolað lengur slitnu endana mína....ég og miriam fórum svo heim til hennar að gera okkur fínar fyrir fermingarveisluna....en þegar við komum heim til frænku miriam þá komst ég að því að ég á alveg yyyyndislegustu vini í heimi hérna...þá var þetta ekki fermingarveisla heldur óvænt ammælis veisla!!!! ....og með alveg bestu ammælisgjöf...þar sem þau vildu gefa mér eikvað sem ég myndi alltaf eiga þá keyptu þau spænskan fána og skrifuðu öll skilaboð til mín á hann og hengdu svo allskonar nælur og dót á hann(L).....og þar sem þetta var víst ekki heima hjá frænku miriam heldur íbúð sem afi hennar á en notar ekki þá höfðu þau haft fyrir því að koma með allt dót þangað eins og sjónvarp og wii og playstaition og spil og svona :D.......og josé gleymdi náttlega ekki rúllettunni sem við gáfum honum í ammælisgjöf í vetur....svo datt okkur guzz í hug að fara í bullshit áður en við föttuðum að allir hinir voru í singstar. Svo við ákváðum að fara í póker áður en við föttuðum að hvorugt okkar kann reglurnar eikvað almennilega og við vorum ekki með neitt til að spila uppá...svo við enduðum á því að draga josé með okkur til að kenna og notuðum hnetur sem peninga....en vorum svo alltaf að gleyma okkur og borða "peningana okkar" í staðinn fyrir það sem var í skálinni....en svo var náttúrlega aðeins kíkt á fólkið á garage og þar sem miriam er svona hálfgert VIP þarna (þekkir nánast alla dj-ana) þá var spilað fyrir mig eitt af uppáhaldslögunum mínum með PapaRoach (mjög sjaldan spilaðir þarna og nánast alltaf sama lagið:S). Svo fórum við öll nema rin heim til Muller þar sem við gistum í stofunni....þegar við vorum loksins búin að koma okkur fyrir og í náttföt og svona tók það bara næstum því klukkutíma að segja góðanótt...hugsa að ég hafi sagt að minnsta kosti 10xgóða nótt við hverja manneskju :S..en eikverneginn tókst okkur að sofna..meira samt hálfsofa fyrir flesta...áður en vekjaraklukkann hringdi til að láta vita að josé og miriam þurftu að fara að vinna...
Svo bauð fjölskylda rin og muller mér í páskamat í hádeginu svo ég og muller fórum heim til rin en hann þurfti svo að fara að gera eikvað verkefni fyrir skólann svo að ég og rin vorum bara tvær að hanga eikvað...rin kenndi mér að spila bassalagið með white stripes og svona (man ekki hvað það heitir)....en svo fór ég bara heim og fjölskyldan hafði smá kvöldmat fyrir mig og eikvað um kvöldið
Annars er ekki mikið búið að gerast nema að skólinn byrjaði aftur í dag eftir páskafrí og var alveg mjög gaman að hitta alla hina krakkana aftur....

 

Sigríður St Hlynsdóttir

önnur ritgerð fyrir afa ;)

12. mars 2009 klukkan 22:06
já mér finnst bara alltof stutt í að ég komi heim. Sá það í skóladagbókinni minni í dag að það eru bara 16 vikur í að ég komi heim!!!....alltof fljótt að líða þessi tími hérna...
en já það er semsagt alveg slatti búin að vera að gerast hjá mér....
helgina 5-8 feb: þá var aðal hátíð ársins hérna í salou og fengum frí á föstudeginum og mánudeginum...á laugardeginum er alltaf skrúðganga með svona grúppum sem keppast alltaf um að vera með sem flest fólk. Þá eru allir í sömu grúppunni í eins búningumog voða fjör og svona. Ég ákvað eins og langflestir krakkarnir að fara í grúppuna hjá unglingamiðstöðinni og við vorum nautabanar ;)...byrjaði 10 (morgunmatur kl 8 fyrir þá sem vildu...ég og miriam ákváðum að sofa aðeins lengur ;) um morgunin með einni lítilli skrúðgöngu frá skólanum og niður á strönd og aftur til baka sem tók svona sirka 2 tíma...svo var sameiginlegur matur fyrir alla sem voru í minni grúppu ...svo var bara farið heim að hvíla sig smá fyrir aðalskrúðgönguna um kvöldið...og vá það er ekki hægt að lýsa því hvernig sú skrúðganga er...það er orðið alveg dimt úti og á stærstu götu bæjarins er búið að setja diskóljós alla götuna og svo í stanslausan 1 og 1/2 eða 2 tíma er skrúðgangan (ein grúppa í einu gengur inn á götuna og er kynnt og sagt hvað eru margir í þeirri grúppu og okkar grúppa var með 400 manns!!! stærsta grúppan þetta árið;)...og yfir skrúðgönguna er skotið confetti (marglituðu pappírssnifsin) endalaust svo að fæturnir manns hverfa alveg í því....eftir skrúðgönguna var svo bara skellt sér út að borða með krökkunum og svo í la carpa (skemmtitjaldið hjá bænum) og svo heim að sofa...
helgina 13-15 feb: þá var skellt sér með AFS upp á eikver fjöll sem var bara mjög fínt. sá loksins snjó ;D....en vorum þarna lengst út í rassgati, bara 8 tíma ferð frá Salou, þurfti fyrst að taka 1 og hálfs tima lest frá salou til barcelona, svo þurftum við að bíða í 2 tíma á lestarstöðinni þar til þess að geta tekið aðra lest norður í 3 klukkutíma, svo þurftum við að taka eikverja sérstaka fjallalest í næstum klukkutíma og svo eikvern gondólfa/kálf til að komast alla leið upp á topp í mótelið.. varst samt alveg ágætt þarna bara í rólegheitunum...fórum í eikverja leiki um kvöldið og á laugardagskvöldið var okkur skipt í pör og áttum við að leika svona lífshlaup i sambandi allt frá fyrsta stefnumótinu og þangað til parið deyr úr elli, bara einn twist á þessu...strákarnir áttu að leika stelpuna og stelpurnar áttu að leika strákana. Og auðvitað átti að dressa sig upp i samræmi við það.....annars var helgin bara aðallega chill og að hitta hina skiptinemana og sjálfboðaliðarnir fengu tækifæri til að tala aðeins við okkur hvernig allt gengi og svona...á sunnudeginum var svo bara lagt af stað um hádegi og svo chillað aðeins í barcelona þeir sem bjuggu þar og þeir sem voru að bíða eftir lestum eða flugi eða eikverju...
Mars: mánuðurinn byrjaði með prófaviku. Spænskukennarinn minn var svo sniðugur að láta mig vita að ég þyrfti líka að gera verkefni sem bekkurinn var búin að vera að gera síðan í október og svo er einn og einn búin að vera að kynna sitt...ég þurfti fyrst ekki að gera það þar sem það átti að klárast í des/jan og var um spænskar bókmenntir frá 18. öld og allt á spænsku frá þeim tíma en út af því að það áttu ennþá eikverjir eftir að kynna verkefnið sitt ákvað kennarinn að ég gæti gert litla útgáfu af því líka og lét mig vita 2 dögum áður en prófavikan byrjaði að ég hefði 5 daga til að gera það....svo las hún það yfir áður en ég fór með kynninguna og lét mig vita að ef þetta væri verkefni frá eikverjum öðrum í bekknum hefði ég verið fallinn en ætlaði að setja viðunandi á það því ég væri búin að vera svo stutt hérna..og svo átti ég að fara með kynninguna..hjálpaði ekki til með stressið :/....
Á fös-lau kom svo eikver professional að hjálpa kórnum með verk fyrir tónleika sem verða eftir 2 vikur en ég get ekki tekið þátt í því ég verð á The Killers!! ;D.....var samt mjög fínt að mæta þessa helgi...lærðum hvernig söngur hefur 3 víddir og hvernig á að syngja þannig og svona....á laugardeginum borðaði allur kórinn hádegismat saman og svo þegar þjónninn spurði hvað við vildum í eftirrétt þá ákváðum ég og Laura að fá okkur það sem þjónninn sagði að væri vanillu pudding....var eikver búðingskaka,þurr, sem var með kaffibragði og karmellu sósu..:/...
Á sunnudeginum flutti ég svo loksins með fjölskyldunni...vöknuðum klukkan hálfátta um morguninn og klukkan 1 var allt stórt dót og föt og svona komið í íbúðina...vantaði bara hluti eins og hnífapör og svona...ég varð svo bara eftir í nýju íbúðinni til að lagfæra herbergið mitt og fór svo að læra....Á laugardeginum flutti Julii (stóra systirinn) líka í nýja íbúð en hún flutti út frá kærastanum sínum.....
Íbúðin er í bænum við hliðiná Salou, sem heitir Cambrils og er mjög fín. Hún er stærri en hin íbúðin og með 4 svefnherbergjum en bara einum litlum svölum og engum garð sem mér finnst eiginlega vanta svolítið þar sem það er farið að vera......wait for it.......20-25 stiga hiti úti á daginn!!!!!.....í MARS!!.....hún er samt mjög nálægt lestarstöðinni, ekki 5 mín að labba þangað, svo það er mjög þægilegt þar sem ég hef þurft að taka hana bara 8 sinnum í vikunni....
Í dag fór Jeró (frændinn) svo til Barcelona til að kveðja alla þar en hann fer aftur til kólumbíu með pabba sínum á laugardaginn...pabbinn fékk ekki atvinnuleyfi hérna og þarf að fara og jeró ákvað að fara með honum því nánast öll fjölskyldan hans er þar...er samt soldið skrítið að vita það að ég sé hann kannski ekki aftur...allavega mjööög langur tími þangað til :S..fékk mig til að hugsa hvað næsta ár verður eikvað skrítið fyrir marysol og gabriel næsta ár...þetta ár vorum við 5 (6 ef við teljum hundiinn með sem verður eiginlega að gera), þau tvö, manuela, jeró og ég..og næsta ár verða þau bara 2...verða ekki einu sinni með hundinn þar sem þau máttu ekki taka hann með í nýju íbúðina...
Er samt að horfa á náttborðið mitt núna og held ég sé komin með sönnun fyrir því að ég og afi erum skyld....tók ekki eina einustu bók með mér út( veit ekki hvað ég var að hugsa..eru þungar taka mikið pláss hafði ekki mikinn tíma til að lesa í fyrra fyrir utan skólalestur.....) en er búin að takast að safna mér 8 bókum. Reyndar eru 2 lánsbækur en ég er búin að gefa einni vinkonu minni 2 sem ég átti til eintak af heima :/


Ahhh...bara 16 vikur þar til ég kem heim...var að fá upplýsingar um flugið mitt heim...aðfaranótt 7. júlí ;)

 

p.s. er enn að bíða eftir bloggi frá hönnu!!!!! (er ekki að segja að þú sért eikvað léleg í að blogga)

Sigríður St Hlynsdóttir

but my thoughts need no space, from them I'll never escape...

03. febrúar 2009 klukkan 21:52
-Barcelona á fös með vinunum (líklegast)
-Tónleikar með kórnum á fös
-Fiesta í gangi í síðustu viku og þessari
-Engin skóli á fös eða mán
-Lau aðalfiestan, bærinn skiptist í hópa sem eru í sitt hvorum búningnum

-Minn hópur verður nautabanar

-Var að ná í búninginn í dag
-Og fékk að vita að fjörið byrjar 7 á laugardagsmorgun!!!!
-Ég vissi það ekki þegar ég skráði mig í hann
-Gleymdist óvart að segja mér það

-Hópverkefni í jarðfræði

-Hópverkefni í nútímavísindum

-Hópverkefni í stærðfræði

 

-Þarf að vinna öll hópverkefnin heima

 

-Erfitt að finna tíma fyrir einn hóp að hittast

 

-En erfiðara þegar þeir eru orðnir 3

 

-Fer upp í fjöllin með AFS 13-15 feb
-Fæ frí í skólanum á föstudeginum!!!
-Á mánudeginum verð ég svo flutt með fjölskyldunni

-Áfram í sama bæ og sama skóla

-Set heimilisfangið inn þegar ég veit það
-Stærðfræðikennarinn er orðinn uppáhaldskennarinn minn
-Er bara alltof skilningsrík á vankunnáttu mína í katalónsku

-Er loksins byrjuð að skilja eikvað í heimspeki tímum

-Er að verða hálfnuð með fyrstu bókina mína á spænsku

-Búið að taka 3 vikur

-Er 680 bls

 

-Ákvað að taka beltaprófið hérna í feb
-Hætti svo við

-Enn að bíða eftir nýju bloggi frá Hönnu!!!
Sigríður St Hlynsdóttir

nýtt blogg...

28. janúar 2009 klukkan 17:24

thegar hanna kemur med nýtt...

Sigríður St Hlynsdóttir

Nýtt símanúmer!!!!!!!!

11. janúar 2009 klukkan 18:16

0034 652 399 561

Sigríður St Hlynsdóttir

gleðileg jól allir saman það er komin jólastund

26. desember 2008 klukkan 15:01
stór jólaknús og jólakveðjur frá spáni!!!
Sigríður St Hlynsdóttir

Strax komin jól :O

23. desember 2008 klukkan 14:30
já það er nú bara það, aðfangadagur á mrg og allez. Langar að þakka fyrir þessar yndislegu jólagjafir sem ég er búin að fá hérna ;D....
En já, þar sem guzzman átti eftir að halda upp á ammælið sitt fyrir prófin þá var prófalokafögnuðinum og ammælinu skeytt saman í einn snilldardag. Guzz bauð fólki heim til sín í grillveislu upp úr hádegi og svo var bara hangið þar og haft gaman það sem eftir var af deginum. Fengum smá tónleika hjá Made in China sem voru ekki alveg að standa sig þar sem þeir vildu ekki taka nein lög með PapaRoach :/, held reyndar að þeir kunni ekki nein :o, en tóku samt alveg slatta af öðrum góðum lögum svo það bjargaði þeim. Svo var ákveðið að skella sér á el garage þar sem var náttlega snilldar gaman eins og alltaf ;)...
...svo í síðustu viku þá var "venjuleg" skólavika, lærðum reyndar ekki mikið þar sem kennarar voru ekkert að stressa sig neitt og leyfðu tímunum bara að fara í allskonar spjall, þeir kennarar sem voru búnir að fara yfir prófin komu með þau í tíma og svo var leynivinaleikur og eikvað. Á föstudeginum var svo rock'n'roll sing along um morguninn þar sem bekkurinn minn fór á kostum og var eini bekkurinn þar sem allir sungu allavega einu sinni og lá við að yrði eini sem syngi allavega eikvað. voru mesta lagik 3 eða 4 lög sem ekki allavega einn úr bekknum fór og söng. gæti kannski skýrst af því að það virðist sem allir hér í bænum sem hlusti á rokk eru samankomnir í þessum eina bekk, hinir eru allir á kafi í technoinu. Eftir það var nesti hjá mínum árgang og við miriam og rin fórum bara að hjálpa sergio og guzz og chino að undirbúa sig fyrir að spila fyrir fólkið eftir hádegi. svo fórum við að sækja einkunnirnar (2-10 hjá mér) og fólkið gaf leynivini sínum pakka og ég fékk krúttlegasta bangsa í heimi sem heitir caramelo ;D...svo var bara farið að hlusta á strákana spila. eftir mat fór ég síðan með marysol og manuelu og jeró og jony til tarragona þar sem ég keypti mér alveg geðveika skó...svona öklaboots úr svörtu rússkinni alveg geðveikir ;D....svo um kvöldið voru tónleikar hjá kórnum....
laugardagurinn byrjaði  með því að ég fór með miriam og narcis til tarragona að kaupa ammælisgjöf fyrir josé. um kvöldið var svo ammælið sem var bara snilld og aftur endað á el garage sem átti 13 ára afmæli og var þess vegna troðið á staðnum.
í gær fór ég svo með jessicu að hitta eikvern prófessor frá háskólanum í  tarragona. hann er að skrifa orðabók, íslenska katalónska og vildi fá að spurja mig um eikverja hluti og svona. held það sé samt sönnun á því að íslenska er bara alltof erfið að tala þegar maðurinn er búin að vera að læra íslensku í 30 ár og getur lesið og skrifað og allt bæði á nútíma íslensku og forníslensku en er ekki að skilja helminginn af því sem maður segir nema maður skrifi það niður!!

með Jólakveðjum frá öllum á Spáni (K)
SiggaStefanía
Sigríður St Hlynsdóttir

pínu prófablogg ;)

09. desember 2008 klukkan 20:34
þá er maður bara aftur komin á fullt í prófum...er samt reyndar alveg að verða búin. "frelsi" eftir 2 daga..fæ þá svona falskt frelsi því spánverjar eru svo sniðugir að jólafríið byrjar ekkert þegar maður er búin í prófunum heldur byrjar það ekki fyrr en 20. des :/
en allavega þá er ég búin að vera rosadugleg að læra...var til dæmis allan sunnudaginn með miriam að læra efnafræði..fórum samt smá í singstar og búa til fotolog fyrir mig og smá msn og webcam og borða en náðum samt að læra nokkuð mikið :O...svo í gær fórum við til guzz að læra meiri efnafræði undir styrkri leiðsögn móður hans...borðuðum þar líka og mamman var svo góð að spurja mig hvað ég vildi hin fengu ekkert val, hvort vil ég venjuleg hrísgrjón, svört hrísgrjón eða filet..og svo voru þau öll eikvað að reyna að útskýra hvað svört hrísgrjón eru og ég bara jájá ég prófa það..semsagt svona paella með kolkrabba og það kallast svört hrísgrjón því þau litast svört með kolkrabbableki!!..var samt alveg nokkuð gott,...er samt ekkert alltof hrifin af kolkrabbanum þar sem það er varla bragð af honum og hann er soldið seigur svo ég fæ hálfgerða klígju við að borða hann....svo fengum við smá hlé sem ég og miriam nýttum í að láta guzz kenna okkur muse lag (held new born??) á píanóið...svo lét miriam í ljós vitneskju sína á '90s poprokki með því að fatta ekki að guzz var að spila wonderwall með oasis á gítarinn :/....issh ekki nógu gott sko..kíktum svo smá til narcis...greyið einn lasinn heima hjá sér :(...
Sigríður St Hlynsdóttir

AAAHHH

27. nóvember 2008 klukkan 19:50
haha...næstum orðin regla hjá mér að segja frá hlutum næstum viku eftir að þeir gerast :/
en allavega á föstudaginn var farið til Tarragona með eðlis og efnafræði á eikverja vísindaviku...fórum fyrst þar sem voru svona fullt af básum með ýmsu og var sýnt allskonar skemmtilegt með efnafræði og svo fengum við fullt af minjagripum...á einum staðnum gat ég líka fengið að skrifa nafnið mitt með blindraletri;)
vorum búin þar um svona eitt leytið og þá fóru bara allir á mcdonalds að bíða eftir því að debate hefjist um los plastics?? þar voru nefnilega muller og guzz að taka þátt og rin og jessica voru í þeim hópi sem átti að spurja ræðumennina spurninga...ég var búin að búa mig undir að skilja ekki mikið þar sem ég vissi ekkert hvað los plastics var og er orðin vön því að allt svona opinbert er á katalónsku...var þess vegna mjög ánægð þegar fundarstjórinn fór að tala á spænsku og svo allir fullorðnu...en svo þegar ræðurnar hófust þá töluðu bara allir krakkarnir á katalónsku!!!en svo út af því verðlauna afhendingin kláraðist ekki fyrr en 5 mín áður en lestin fór þá fórum við bara út í eikverja leiki og tjill því það er alveg 1 og hálfur tími á milli lesta til salou!!! En svo þegar við komum heim þá ákváðu krakkarnir að fara á kóræfingu þótt hún væri byrjuð og ég bara fylgdi þeim því ég var hvort eð er löngu búin að missa af æfingu...svo komst ég að því að kórinn byrjar ekki fyrr en 8:30 en ekki 8 eins og ég hélt og þess vegna get ég byrjað í honum líka ;D....svo eftir kórinn vorum við bara eikvað að tjilla. Þegar ég kom svo heim var engin heima nema gabriel og hann var farinn að sofa...og svo var enginn heima heldur þegar ég vaknaði til að fara á æfingu og þaðan fór ég svo beint til barcelona. þar sem ég hafði bara rétt svo rent yfir póstinn með nákvæmu upplýsingunum hélt ég að við ættum að hittast á lestarstöðinni eins og venjulega og kl 2 en svo hálfþrjú og enginn mættur fór ég á hótelið þar á netið og sá að ég átti að hitta hina á metro stöð...svo það var bara drifið sig þangað og svo þegar ég var komin þá voru náttlega fólkið farið og ég hringdi í ricard sem var skipuleggjandinn og hann sagði mér eikvað hvert ég ætti að fara svo ég var þarna alein í barcelona að reyna að finna götu sem hét La Rambla...tókst að finna hana að lokum með leiðbeiningum frá ýmsum góðhjörtuðum spánverjum ;) svo var farið á skauta...innandyra á fyrstu hæð í háhýsi!!var alveg geðveikt spes....um kvöldið var síðan farið út að borða og svo heim til ricards þar sem allir nema hannah ætluðu að gista og svo var bara haft gaman þar áður en það var farið út....chauncy vildi eikvað endilega fara á eikvern hugga??bar og ricard fékk leiðbeiningar frá eikverjum dyraverði en eftir smástund vorum við bara komin í burtu frá öllum börunum svo hann hringdi í vinkonu sína...þá fattaði hann um leið að hann hafði vitað allan tíman hvar barinn var!! :/
en á sunnudaginn var ég svo á leiðinni heim og rétt missti af lestinni minni!! svo ég ákvað að fara á mcdonalds og komst þá að því að eikver hafði stolið veskinu mínu!!!! svo ég var þarna ein með engan pening ekkert kort engan lestarmiða og síminn minn batteríslaus...svo ég fór beint til lögreglunar og fékk að hringja í tutorinn minn hjá afs..,hringdi akkurat um leið og hann lagði frá sér hnífapörin eftir matinn haha..góð tímasetning..svo hann kom og gat þýtt fyrir lögguna og svo var hann svo góður að lána mér fyrir lestarmiðanum :D
svo kom marysol heim í gær frá kólumbíu og var með fullar töskur af "minjagripum" (aðallega cosas de america) en hún var svo mikið krútt að gefa mér náttföt og ilmvatn og gloss og eyeliner ;K
svo ákvað ég í dag að gefast upp og samþykkja að fara til læknis þar sem marysol er strax farin að biðja mig að fara....
svo var ég alveg geðveikt dugleg í dag í nútímavísindum þar sem við áttum að vera með hópakynningar og minn átti að kynna eikvað um jarðflekana og tengt því...og ég var að útskýra bylgjurnar sem myndast við skjálfta og skalana sem eru notaðir til að mæla og tækin og svo vildu miriam og henrique endilega að ég segði eivkað frá íslandi út af því að það er á flekaskilum...
Sigríður St Hlynsdóttir

Me

  • Nafn: Sigríður St Hlynsdóttir
  • Staður: Salou, Tarragona
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: skiptinemi á spáni
  • Hjúskaparstaða: síngúl
  • Um mig: hola!..hérna er ég 17 ára stelpa úr breiðholtinu, æfi taekwondo og er stödd út á spáni sem skiptinemi....

Auglýsing

Atburðarteljari